Útilegukortið
sdsd

Austurland - REYÐARFJÖRÐUR

LoadingAdd

Tjaldsvæðið er á fallegum stað við Andapollinn, lítilli tjörn á vinstri hönd við innkeyrsluna í bæinn. Á svæðinu eru sturtur, salernisaðstaða, þvottavél og rafmagn, en
losun fyrir húsbíla er hjá þjónustumiðstöð Olís, skammt frá tjaldsvæðinu. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er opin á sumrin í Íslenska stríðsárasafninu við Heiðarveg. Skemmtilegar gönguleiðir í fallegu umhverfi liggja meðfram byggðinni ofanverðri og upp með Búðarárgili. Íslenska stríðsárasafnið er við upprunalega herbragga ofarlega í bænum. Safnið gerir hernámsárunum einstök skil, bæði hvað atburði tímabilsins snertir og tíðaranda. Í miðbæ Reyðarfjarðar er m.a. verslunarmiðstöðin Molinn og Sesam brauðhús, sem er ekta handverksbakarí og kaffihús. Vestan við Molann er Tærgesen, eitt elsta hús Reyðarfjarðar og er þar rekið samnefndur veitinga- og gististaður. Ysta bryggjan, austan við Molann, nefnist Barkurinn og mótar enn fyrir seglskipi, sem var sökkt á þessum stað sem bryggjuundirstaða. Síðustu helgina í júní er hernámsins minnst með Hernámsdeginum og er þá m.a. efnt til setuliðsskemmtunar í Íslenska stríðsárasafninu.
Golfklúbbur Fjarðabyggðar rekur 9 holu golfvöll, skammt innan við þéttbýlið.
Reyðarfjörður er landfræðileg miðja sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og þaðan liggja leiðir til Eskifjarðar og Norðfjarðar í norðri og Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur í suðri.

Helstu upplýsingar

Heimilisfang Búðareyri
Póstfang/Bær 730 Reyðarfirði
Sími 776 0063
Netfang camping.reydarfjordur@gmail.com
Vefsíða www.visitfjardabyggd.is
Opnunartími 15 maí – 15 september

Þjónusta á staðnum

Önnur tjaldsvæði á Austurlandinu

Eskifjörður

Strandgata
735 Eskifjörður

Open
15 maí – 15. september

[:is]

Íslenska

Viðskiptavinir athugið að áður auglýstir opnunartímar tjaldsvæða getur breyst með hliðsjón af tilmælum stjórnvalda um samkomubann.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

English

Opening dates and hours of camping sites might be changed due to government action for COVID19.

Deutsch

Die Öffnungszeiten der Campingplätze können aufgrund staatlicher Maßnahmen für COVID19 geändert werden.

[:]