Útilegukortið
sdsd

Norðurland - Dalvík

LoadingAdd

Tjaldsvæðið er við suðurinnkeyrsluna í bæinn (þegar komið er frá Akureyri) alls 9.500 fermetrar að stærð.  Það stendur við hlið íþróttasvæðisins, skólans og Sundlaugarinnar á Dalvík. Í kring er góð aðstaða til leikja fyrir börn, grasbalar fyrir leiki og boltaspark, gervigras sparkvöllur, körfuboltavöllur og ýmis leiktæki.
Á tjaldsvæðinu er heitt og kalt vatn, sturtur og snyrtingar með aðgengi fyrir fatlaða. Á svæðinu er góð aðstaða innandyra, þar er hægt að þvo leirtau og elda. Innandyra er aðstaða til að setjast niður.
Hægt er að komast í þvottavél, þurrkara og aðstöðu til að þurrka skóbúnað.
Einnig er rennandi vatn fyrir áfyllingar á vatnstanka og niðurfall fyrir losun ferðaklósetta.
Fjölmargir áhugaverðir staðir finnast á Dalvík og á Tröllaskagum öllum sem vert er að heimsækja. Tröllaskagi er ríkur af bæði náttúruminjum og menningarminjum. Má þar t.a.m. nefna Friðland Svarfdæla og Fólkvang í Böggvisstaðasfjalli. Vinsælt hefur verið að fara í hvalaskoðun, bjórböðin sem opnuðu sumarið 2017 og ógleymdum gönguleiðum. Svo er heimasókn á Byggðasafnið Hvoll en Tveir þjóðþekktir svarfdælingar eiga sínar stofur á safninu. Þar ber að nefna Jóhann Svarfdæling sem eitt sinn var hæsti maður heims og Kristjánsstofu Eldjárns.
Nánari upplýsingar um afþreyingu og þjónustu á svæðinu er að finna á www.visittrollaskagi.is

Útilegukortið gildir ekki yfir fiskidagsvikuna, eða frá 4.-9. ágúst 2020.

Helstu upplýsingar

Heimilisfang Svarfaðarbraut
Póstfang/Bær 620 Dalvík
Sími 625 4775
Netfang sundlaug@dalvikurbyggd.is
Vefsíða tjalda.is/dalvik
Opnunartími 15 maí til 15 september

Þjónusta á staðnum

Önnur tjaldsvæði á Norðurlandinu

HEIÐARBÆR

Heiðarbær Reykjahverfi
641 Húsavík

Open
1. júní–10. september

HVAMMSTANGI

Kirkjuhvammur
530 Hvammstangi

Open
15. maí–15. október

Kópasker

Austurtröð 4
670 Kópasker

Open
15. maí - 15. september

Lónsá

Lónsá
601 Akureyri

Open
júní - 15 september

Raufarhöfn

við Skólabraut
675 Raufarhöfn

Open
1. júní - 15. september

SIGLUFJÖRÐUR

Gránugötu 24
580 Siglufjörður

Open
12. maí – 15 október

SKAGASTRÖND

Hólabraut 35
545 Skagaströnd

Open
1. júní – 10. september

ÞÓRSHÖFN

við Miðholt
680 Þórshöfn

Open
1.júní–31.ágúst

[:is]

Íslenska

Viðskiptavinir athugið að áður auglýstir opnunartímar tjaldsvæða getur breyst með hliðsjón af tilmælum stjórnvalda um samkomubann.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

English

Opening dates and hours of camping sites might be changed due to government action for COVID19.

Deutsch

Die Öffnungszeiten der Campingplätze können aufgrund staatlicher Maßnahmen für COVID19 geändert werden.

[:]