Útilegukortið
sdsd

Austurland - NORÐFJÖRÐUR

LoadingAdd

Tjaldsvæðið er á fallegum útsýnisstað við snjóflóðavarnargarðana í Drangagili, ofan við Víðimýri. Á svæðinu eru sturtur, snyrting, rafmagn, leiksvæði og strandblakvöllur. Ganga má upp á
varnargarðana og njóta stórkostlegs útsýnis yfir bæinn, fjörðinn og fjöllin. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er í anddyri Sundlaugar Norðfjarðar og er hún opin allt árið.
Safnahúsið í Neskaupstað er í fallega uppgerðu húsi við gömlu höfnina í miðbænum. Þar eru þrjú frábær söfn til húsa; Málverkasafn Tryggva Ólafssonar, Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar og Náttúrugripasafnið í Neskaupstað. Hinum megin götunnar er Kaupfélagsbarinn, sem er með glæsilegri veitingastöðum og Nesbær, rótgróið kaffihús og bístró. Sundlaug Norðfjarðar er flott útilaug með fallegri fjallasýn, heitum pottum og tveimur stórum rennibrautum. Önnur þeirra nefnist Dóri rauði og er með lengstu sundrennibrautum landsins. Í næsta nágrenni sundlaugarinnar er síðan Lystigarðurinn í Neskaupstað. Skorrahestar eru í Norðfjarðarsveit, rétt innan við bæinn, með hestaleigu og útreiðar og enn innar rekur Golfklúbbur Norðfjarðar skemmtilegan níu holu golfvöll. Fólkvangur Neskaupstaðar liggur rétt utan við bæinn, í austurhluta Norðfjarðarnípunnar og er leiðin út í Páskahelli á meðal þekktari gönguleiða
staðarins. Þrjár stórar sumarhátíðir eru haldnar á Norðfirði. Sjómannadagurinn er þriggja daga hátíð aðra helgina í júní, aðra helgina í júlí fer fram tónlistar- og rokkhátíðin Eistnaflug og um verslunarmannahelgina er haldin fjölskyldu- og útihátíðin Neistaflug ásamt Barðsneshlaupinu. Neskaupstaður er einn af sjö bæjarkjörnum Fjarðabyggðar.

Helstu upplýsingar

Heimilisfang Víðimýri
Póstfang/Bær 740 Neskaupstað
Sími 776 0061
Netfang camping.neskaupsstadur@gmail.com
Vefsíða www.visitfjardabyggd.is
Opnunartími 15 maí – 15 september

Þjónusta á staðnum

Önnur tjaldsvæði á Austurlandinu

Eskifjörður

Strandgata
735 Eskifjörður

Open
15 maí – 15. september

[:is]

Íslenska

Viðskiptavinir athugið að áður auglýstir opnunartímar tjaldsvæða getur breyst með hliðsjón af tilmælum stjórnvalda um samkomubann.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

English

Opening dates and hours of camping sites might be changed due to government action for COVID19.

Deutsch

Die Öffnungszeiten der Campingplätze können aufgrund staatlicher Maßnahmen für COVID19 geändert werden.

[:]