Útilegukortið

Um Útilegukortið

Útilegukortið ehf. var stofnað árið 2006.

Markmiðið með stofnun Útilegukortsins er að gefa íslenskum og erlendum ferðamönnum kost á því að ferðast um Ísland á ódýran og hagkvæman hátt með gistingu á sérvöldum tjaldsvæðum um land.

Útilegukortið gildir á viðkomandi tjaldsvæðum á meðan tjaldsvæðin eru opin fyrir almenning út árið 2020 en þó ekki lengur en til 15. september. Útilegukortið kostar aðeins 19.900 krónur.

Kortið veitir tveim fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins í allt að 28 gistinætur á hverju starfsári þess. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Útilegukortið gildir fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.

Njótið sumarsins og fallegrar náttúru Íslands.

Útilegukortið er ferðafélaginn þinn.

Útilegukortið ehf.
Kt: 471106-1430
Sími: 552 4040
Bankaupplýsingar: 0515-26-1490

Félagið er einkahlutafélag og er skráð í hlutafélagaskrá. Vsk nr. 92331

[:is]

Íslenska

Viðskiptavinir athugið að áður auglýstir opnunartímar tjaldsvæða getur breyst með hliðsjón af tilmælum stjórnvalda um samkomubann.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.

English

Opening dates and hours of camping sites might be changed due to government action for COVID19.

Deutsch

Die Öffnungszeiten der Campingplätze können aufgrund staatlicher Maßnahmen für COVID19 geändert werden.

[:]